Óttar Proppé, formaður Bjartrar framtíðar og Þorsteinn Víglundsson, framámaður í Viðreisn eru sömu skoðunar hvað gjaldmiðilsmálin varðar; krónan hvelji heimilin og geri það að verkum að vextir og vöruverð hér á landi sé alltof hátt.
Þeir eru gestir kosningaþáttar Hringbrautar í kvöld, en þar spyrja Linda Blöndal og Sigmundur Ernir forvígismenn helstu stjórnmálafla landsins um helstu stefnumál flokkanna.
Á mánudagskvöldið í síðustu viku stóðu Inga Sæland, formaður Flokks fólksins og Sigurður Ingi Jóhannesson fyrir sínu máli, en þættirnir, sem eru frumsýndir kl. 21:00 á mánudagskvöldum verða í sýningu fram í sjálfa kosningavikuna.