Samtök atvinnulífsins telja að kröfur Starfsgreinasambandsins um launahækkanir stefni efnahag landsins í voða. Kröfur sambandsins upp á 50 til 70% launahækkun þýði í reynd að hæstu laun hækki hlutfallslega mest.
Í yfirlýsingu frá SA segir að á ofangreindar kröfur geti SA ekki fallist enda sé ljóst að slíkar hækkanir myndu ganga yfir allan vinnumarkaðinn með þeim afleiðingum að verðbólga og stýrivextir myndu hækka mikið og þrýstingur verði á gengi krónunnar. Sviðsmyndagreining SA sýni að ef laun yrðu hækkuð um 30% í þriggja ára samningi yrði uppsöfnuð verðbólga 27% og stýrivextir á bilinu 12-14%. Við þær aðstæður myndi gengi krónunnar falla umtalsvert.