Ráðist gegn lífríki landsins og vísindum

Náttúruverndar- og umhverfissamtökin Icelandic Wildlife Fund (IWF) segja drög Kristjáns Þórs Júlíussonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, að frumvarpi til laga um breytingar á ýmsum lagaákvæðum sem tengjast fiskeldi vera stríðsyfirlýsingu á hendur þeim sem vilja vernda lífríkið og starfa á vísindalegum grundvelli. Þetta kemur fram í yfirlýsingu á Facebook síðu samtakanna.

Samtökin segja að með því að leggja þessi drög fram sýni ráðherra að hann hafi tekið sér stöðu með hagsmunagæslumönnum sjókvíaeldisfyrirtækja gegn vísindamönnum Hafrannsóknastofnunnar og náttúruverndarsamtökum

Sérstaklega er gagnrýnt í frumvarpsdrögunum breytingar sem kveða á um að ráðherra taki ákvörðun um áhættumat erfðablöndunar, en samkvæmt fyrra frumvarpi var áhættumat Hafrannsóknastofnunar bindandi fyrir ráðherra. IWF segja það óásættanlegt að áhættumatið verði gert pólitískt með þessum hætti.

IWF benda á að fræðin og vísindin séu öll á eina leið: „Eldisfiskar sem sleppa úr sjókvíum ógna villtum laxastofnum. „Sleppifiskur úr eldi er stærsta ógn“ laxastofna segir norska Vísindaráðið um nýtingu laxins (Vitenskapelig råd for lakseforvaltning) og hér á landi hefur Erfðanefnd Landbúnaðarins ráðlagt stjórnvöldum að stöðva útgáfu leyfa til eldis með frjóum norskum eldislaxi í opnum sjókvíum.“

IWF segja í yfirlýsingunni að samkvæmt núverandi áhættumati Hafrannsóknastofnunar er gert ráð fyrir að allt að 4 prósent fiska í ám landsins séu fiskar sem hafa sloppið úr eldi, þ.e. að um 1 af hverjum 25 fiskum í íslenskum ám geta verið norskir eldislaxar.

Um þetta segir einnig í yfirlýsingunni: „Sjókvíaeldisfyrirtækjunum finnst þetta áhættumat hins vegar ganga of langt og vilja fá þröskuldinn hækkaðan verulega. Þau vilja fá svigrúm frá löggjafanum til enn rýmri mistaka þar sem fiskar sleppa úr sjókvíunum. Hafrannsóknastofnun hefur mátt sæta þungum þrýstingi af þeirra hálfu og óskaði Landssambands fiskeldisstöðva meðal annars eftir því í fyrra að stofnunin myndi endurskoða matið. Hafrannsóknastofnun hafnaði því en nú ætlar ráðherra að taka valdið til sín svo hægt verði að ganga fram hjá vísindalegum vinnubrögðum.“