Segja íslensku krónuna vera of sterka

Íslenska krónan er of sterk, að mati greiningardeildar Arion banka. Þrátt fyrir áframhaldandi útflutningsvöxt geti hagkerfið ekki staðið undir svona sterku raungengi. „Það er ekki þar með sagt að krónan veikist strax, enda góður gangur í hagkerfinu, viðskiptaafgangur og jákvæðar fréttir að berast af lánshæfi,“ segir í endurskoðaðri hagvaxtarspá sem birt var í dag.
 

Greiningardeildin telur að undirliggjandi verðbólguþrýstingur haldi áfram að aukast. „Samsetning verðbólgunnar er að taka breytingum og vegur húsnæðisverð ekki jafn þungt og áður. Á móti kemur að innfluttar vörur eru hættar að vega á móti innlendum verðbólguþrýstingi eftir því sem gengisáhrifin fjara út,“ segir í hagvaxtarspánni.

Greiningardeildin spáir óbreyttum meginvöxtum út árið. Ekki sé hlaupið að því að setja fram stýrivaxtaspá, þar sem framtíð núverandi peningastefnu sé óljós. Núna sé allt á huldu um það hvort húsnæðisverð verði tekið út úr neysluverðsvísitölunni, hvort fjármálastöðugleiki trompi verðstöðugleika eða hvort kjölfesta verðbólguvæntinga haldi þegar á hólminn er komið. Allt þetta muni skipta máli fyrir vaxtaþróun.

Þá segir greiningardeildin að þrátt fyrir að farið sé að hægja á hagkerfinu hafi óvissan á vinnumarkaði aukist ef eitthvað. Fjöldi kjarasamninga losnar á næsta ári og virðist ljóst að kjarabaráttan verði hörð.

Nánar á 

http://www.ruv.is/frett/segja-islensku-kronuna-vera-of-sterka