Ritstjórarnir sem mættu í samnefndan þátt á Hringbraut í gærkvöld eru sannfærðir um að Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands ætli að bjóða sig aftur fram til embættisins.
Það voru þeir Benedikt Jóhannesson, ritstjóri Vísbendingar og útgefandi Frjálsrar verslunar og Jón Agnar Ólason, ritstjóri sérblaða Morgunblaðsins sem settust á rökstóla með Sigmundi Erni í gærkvöld, en þar var rætt um Ólaf Ragnar, forsetatíð hans og þær breytingar sem hann hefur innleitt í starfi, svo og hvort eðlilegt sé að hann dragi úr hömlu að tilkynna um áform sín. Fari svo að hann fari aftur fram, sem Benedikt og Jón Agnar eru sannfærðir um, stefnir í að Ólafur Ragnar sitji sjötta kjörtímabil sitt því enn hefur ekki komið fram sá sterki forsetaframbjóðandi sem augljóslega getur velgt honum undir uggum.
Illugamálið ber á góma í þættinum, en Benedikt segir það mál að baki, fyrst og fremst snúist það um peningavandræði Illuga, en ráðherrann hafi útskýrt ágætlega sinn hlut í málinu. Jón Agnar tekur þar undir með Benedikt, vissulega hafi staðið Illuga veikst en hann lifi málið af, ekki sé hægt að bera það saman við lekamál Hönnu Birnu Kristjánsdóttur að alvarleika.
Sjálfpínandi höfrungahlaup Íslendinga í innantómum launahækkunum verður einnig til tals, en þar líkir Benedikt Íslendingum við læmingja sem stökkvi fram af brúninni hver í kapp við annan; verðbólgan muni æða upp á næstu mánuðum, ræna þá efnaminni en styrkja þá efnameiri sem sinni útflutningi og líkast til muni stjórnmálamenn svo koma fram á næstu misserum áður en kosið verður að nýju og heita píndum almenningi nýrri leiðréttingu vegna þess hversu blessuð krónan hefur leikið hann grátt.
Ritstjórarnir eru enddursýndir á Hringbraut í dag en einnig sjáanlegir hér á hringbraut.is.