Bóka­út­gef­endur fluttu sjálfir vinnslu bóka úr landi

Stjórn Grafíu, stéttarfélag prent- og miðlunargreina, segir bókaútgefendur hér á landi hafa sjálfir flutt vinnslu bóka úr landi. Egill Örn Jóhannsson, framkvæmdastóri Forlagsins, sagði í kvöldfréttum RÚV í gær að nær allar íslenskar bækur væru prentaðar erlendis í ár þar sem Prentsmiðjan Oddi hefði selt einu bókbandsvél landsins, úr landi. Ummæli Egils hafa vakið mikla reiði og í yfirlýsingu frá stjórn Grafíu kemur fram að ekki sé hægt að skilja ummæli Egils á annan hátt en að það væri Odda að kenna að flestar bækur væru prentaðar erlendis. Fréttablaðið.is fjallar um þetta.

Sjá einnig: Segir málflutning Forlagsins „óforsvaranlegan“

Þá kemur fram að vissulega sé miður að sú staða sé uppi hér á landi, að ekki séu öflug tæki til að sinna þessum hluta bókaframleiðslunar, en stjórn stéttarfélagsins kveðst hafa harmað sölu bókbandsvélarinnar á sínum tíma.