Segja boðsferð samherja "eðlilega"

Bæjarfulltrúi sjálfstæðismanna í bæjarstjórn Akureyrar segir mjög eðlilegt að tveir bæjarfulltrúar í bænum hafi þegið boðsferð á vegum útgerðarfélagsins Samherja til Cuxhaven í Þýskalandi.

Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag þar sem greint er frá því að föstudaginn 12. janúar síðastliðinn hafi tveimur nýjum skipum félagsins verið gefið nafn við hátíðlega athöfn - og hafi tveir fulltrúar bæjarstjórrnar þekkst boð Samherja um að vera viðstaddir hana, Gunnar Gíslason, oddviti sjálfstæðismanna og Matthías Rögnvaldsson, oddviti L-listans.

\"Þetta er augljóslega á gráu svæði,\" segir Henry Alexander Henrysson, siðfræðingur í frétt blaðsins af sama tilefni og vekur athygli á því að bæjarbúar hafi eki vitað af boðsferðinni fyrirfram: \"Það er umtalsverður kostnaður af svona ferðum og því gæti þetta verið óþægilegt. Einnig eru eftiráskýringar aldrei góðar,\" segir siðfræðingurinn í Fréttablaðinu í dag.

Í áttundu grein siðareglna kjörinna fulltrúa kemur fram að kjörnir fulltrúar taki ekki við gjöfum frá þeim sem leita eftir verkefnum eða þjónustu bæjarins.