Fjórir þingmenn Miðflokksins krefjast þess að Bára Halldórsdóttir verði sektuð fyrir að taka samræður sínar upp á Klaustur bar þann 20. nóvember síðastliðinn. Reimar Snæfells Pétursson, lögmaður þingmannanna, hefur sent Persónuvernd bréf þar sem þessi krafa er ítrekuð. Í bréfinu er óskað eftir myndefni sem sýni mannaferðir fyrir utan barinn þetta kvöld og einnig kemur fram að þingmenn telji Báru hafa tekið sér gervi erlends ferðamanns. Stundin greinir frá.
Landsréttur staðfesti um miðjan janúar úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um kröfu þingmannanna fjögurra, þeirra Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, Gunnars Braga Sveinssonar, Bergþórs Ólasonar og Önnu Kolbrúnu Árnadóttur, um gagnaöflun og vitnaleiðslur vegna fyrirhugaðrar málsóknar þeirra gegn Báru.
„Álagning stjórnvaldssekta er liður í virkri réttarvernd fyrir ólögmætum inngripum í friðhelgi einkalífs. Má því ætla að Persónuvernd sé skylt að leggja þær á nema álagning þeirra teldist „ótvírætt brot“ á rétti til tjáningarfrelsis skv. stjórnarskrá,“ segir í bréfinu til Persónuverndar.
Í bréfinu segir einnig að þingmennirnir fjórir telji sig þurfa aðgang að myndefni frá kvöldinu: „Umbjóðendur mínir telja sig þurfa að fá aðgang að þessu myndefni, ekki bara vegna dómsmáls sem þeir íhuga að höfða, heldur einnig og ekki síður vegna meðferðar máls þessa hjá Persónuvernd.“ Þeir telja myndefnið geta varpað ljósi á hversu einbeitt Bára hafi gengið til aðgerða sinna og hvort hún hafi átt sér vitorðsmann eða -menn, þ.e. hvort um samverknað hafi verið að ræða.
Um meint dulargervi Báru segir: „Til að forðast athygli umbjóðenda minna virðist gagnaðili hafa tekið sér gervi erlends ferðamanns. Hún hafi gert sér far um að haga sér sem slíkur. Þannig hefur gagnaðili sagst hafa haft „bæklinga um innanlandsferðir og vinsæla ferðamannastaði“ meðferðis þegar hún mætti á Klaustur. Hún „þóttist“ lesa þá til að viðhalda leynd um aðgerðir sínar.“