Þær sjónvarpsauglýsingar frá VR sem birtast þessa dagana eru að mati SVÞ fjarri öllum raunveruleika um það hvernig vinnuveitendur umgangast starfsfólk sitt,“ skrifa Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu og Margrét Sanders stjórnarformaður í grein sem birtist í Morgunblaðinu í dag.
Þar segja þau að atvinnurekendur upp til hópa leggi sig fram um að hafa samskipti við starfsfólk á sem bestan veg.
„Það handrit að mannlegum harmleik sem sett er á svið á kómískan en um leið gildishlaðinn hátt er verulega vandmeðfarið og ekki til þess fallið að gera gaman að. Við þekkjum a.m.k. ekki þann vinnuveitanda sem vill misbjóða starfsfólki sínu á þann veg sem þar er lýst,“ segir í greininni.
Nánar á
https://www.frettabladid.is/markadurinn/segja-auglsingar-vr-fjarri-oellum-raunveruleika