Afnám verðtryggingar og svokölluð Fyrsta fasteign stjórnvalda voru til umræðu í Ritstjórunum á Hringbraut í gærkvöld, en þar settust á rökstóla Stefán Einar Stefánsson, aðstoðarfréttastjóri Viðskiptablaðs Morgunblaðsins og Þórunn Elísabet Bogadóttir, aðstoðarritstjóri Kjarnans.
Þau gjalda bæði varhug við afnámi verðtryggingar sem í litlu og einangruðu hagkerfi sé nauðsynleegt lántökuform - og sömuleiðis telja þau bæði, einkum þó Þórunn Elísabet, að Fyrsta fasteign stjórnvalda muni nýtast tiltölulega fáum fyrstu íbúðarkaupendum.
Í þætti kvöldsins var farið yfir líðan stjórrnmálaflokkanna á Íslandi og þá einkum stöðu Sigmundar Davíðs, en fjölmargir fréttaaskýrendur og þátttakendur í þjóðmálaumræðunni telja að Framsókn verði að skipta um forystu ætli hún sér að rétta úr kútnum á næstu vikum og mánuðum. Eins veltu viðmælendurnir fyrir sér afhverju endurnýjun í forystu Bjartrar framtíðar og Samfylkingar hefur ekki skilað sér í betra fylgi, hvernig Pírötum muni reiða af í ljósi lítillar þátttöku í prófkjörum og hvort nóg sé að hrista hausinn yfir fyrstu tilburðum Þjóðfylkingarinnar á Íslandi.
Ritstjórarnir eru endursýndir í dag, en frumsýndir öll þriðjudagskvöld klukkan 21:30.