Minnihlutanum á Alþingi var í raun hótað með því þegar Sigurður Ingi Jóhannsson, forsætisráðherra þjóðarinnar frá og með morgundeginum sagði í svari við spurningu frá fréttastofu Sjónvarps, að það myndi velta á því hve vel gengi að koma málum fram í gegnum þingið hvenær boðað yrði til kosninga. Þetta segir Björn Valur Gíslason, varaformaður VG.
Undir þetta tók Guðni Th. Sigurðsson sagnfræðingur í útsendingu sjónvarps og sagði að lesa hefði mátt ummælin sem skilyrði þótt sjálfur vildi hann ekki nota orðið hótun.
Björn Valur segir að Sigmundur Davíð hafi fallið á spillingu og að stjórnin nú muni einnig falla á spillingu.