Mat Fjarðalax sem er í eigu Arnarlax er að um 300 fiskar hafi sloppið úr sjókví í júlí síðastliðnum. Matvælastofnun telur sig ekki geta staðfest það.
Til dæmis er nefnt þetta: „Fjöldi dauðra fiska er að öllu jöfnu meiri en þau afföll sem eldisfyrirtæki skrá. Ástæða þess er að allur dauður fiskur skilar sér ekki í dauðfiskabúnaðinn á botni sjókvía. Fiskur sem ekki skilar sér í búnaðinn rotnar og fellur til botns ef ekki er unnt að safna dauðum fiski daglega. Vegna ytri aðstæðna er ekki hægt að safna dauðum fiski daglega”.
Sláturtölur úr sjókví Fjarðalax í Tálknafirði þar sem slysaslepping átti sér stað í byrjun júlí 2018 bárust Matvælastofnun í síðustu viku. Matvælastofnun getur ekki áætlað hve margir fiskar hafa raunverulega sloppið vegna óvissþátta, eins og það er orðað í tilkynningu stofnunarinnar.
Matvælastofnun hefur lokið skoðun á umfangi slysasleppingar í Tálknafirði síðastliðið sumar. Alls var áætlað að tæplega 153 þúsund eldislaxar væru í sjókví Fjarðalax í Tálknafirði áður en slysasleppingin varð. Frá því að slysið átti sér stað og fram að slátrun voru skráð afföll um 4.650 fiskur í kvínni samkvæmt talningum Fjarðalax.
Málið er því ekki skýrt og hér má lesa nánari útlistun Matvælastofnunar.