Segja 16 þúsund störf vera í hættu

Samtök atvinnulífsins telja að til uppsagna komi í öðru hverju fyrirtæki verði launakröfur Starfsgreinasambandsins knúnar fram á næstu dögum eða vikum enda sé þar verið að tala um 50 til 70% almennar launahækkanir.


Ný könnun meðal aðildarfyrirtækja SA sýnir að meira en annað hvert fyrirtæki, eða 55,4% myndu neyðast til að bregðast við miklum launahækkunum með fækkun starfsfólks og verulegri hækkun á verði fyrir vörur og þjónustu.


Flestir stjórnendur eða 43,5%, gera ráð fyrir að fækkun starfsfólks verði á bilinu 5-15%, 31% gera ráð fyrir að fækkun starfsfólks verði á bilinu 16-30%, 10% stjórnenda gera ráð fyrir að fækka fólki um 31-50% og 4,8% fyrirtækja gera ráð fyrir að hætta starfsemi verði kröfur SGS að veruleika. Aðeins 10% stjórnenda telja að fækkunin verði innan við 5%.


Hjá fyrirtækjunum í könnuninni starfa 24 þúsund starfsmenn. Þegar mat stjórnenda fyrirtækjanna á þeirri fækkun starfsmanna sem muni hljótast af 50-70% launahækkun á þremur árum er vegið saman með starfsmannafjölda fyrirtækjanna fæst að starfsmönnum þessara fyrirtækja muni fækka um 14%, eða um 3.400. Sé sú niðurstaða yfirfærð á almenna vinnumarkaðinn í heild fæst að starfsmönnum gæti fækkað um 16.000.