Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra segir að virkja verði meira í landinu svo innistæða verði fyrir þeim launahækkunum sem nú eru boðaðar á vinnumarkaði. Hann boðar fjölgun virkjanakosta.
Ráðherrann bendir á að aukin orkuöflun sé vísasta leiðin til að auka verðmætasköpun í landinu og því þurfi að skoða fleiri virkjanakosti en nú séu til staðar samkvæmt rammaáætlun. Ef ekki komi til þessarar verðmætasköpunar muni ekki verða til innistæða fyrir þeim ríku og að mörgu leyti rétt mætu kjarabótum sem nú sé krafist á almennum og opinberum vinnumarkaði. Þar af leiðandi sé augljóst að fjölga verði virkjanakostum að mun frá því sem núgildandi rammaaætlun geeri ráð fyrir. Allur þorri almennings hljóti að sjá samhengið milli þessara þátta.
Hvað sem líður þessum orðum forsætisráðherra virðist næsta vonlaust að breytingar á rammaáætlun nái fram að ganga á vorþingi, enda aðeins fáeinir dagar eftir af þinginu sem á samkvæmt áætlun að ljúka fyrir mánaðamót. Hætt er við að stjórnarandstaðan verði ekki til viðtals um lengingu þingsins upp á þau býtti að breyta rammaáætlun.