Segir vigdísi hugsa of hægt

Sighvatur Björgvinsson, fyrrverandi ráðherra Alþýðuflokksins og þingmaður til 27 ára er gáttaður á þeim orðum Vigdísar Hauksdóttur formanns fjárlaganefndar Alþingis í Kastljósi að kveldi 16. mars að "þingræði þýði það einfaldlega að sá meirihluti sem situr á þinginu ræður hverjir verði ráðherrar." Kveðst Sighvatur í grein í Morgunblaðinu í dag hafa þurft að skoða upptökuna þrisvar sinnum af því ekki hafi hann trúað orðum þingmannsins í fyrstu. 


Hann segist aldrei hafa kynnst öðru á sínum langa þingferli en að Alþingi hafi breytt tillögum frá ráðherrum, "stundum mjög mikið, stundum minna." Og svo skrifar Sighvatur til Vigdísar: "Þingmaðurinn telur sig með réttu eiga að vera einn af helstu oddvitum fjárveitingavaldsins, eins og það er skilgreint í þingræðisríki. Svo segir hún núna að samkvæmt sínum skilningi sé hlutverk þingræðis það eitt, að meirihluti Alþingis ráði hverjir verði ráðherrar. Síðan ráði þeir."


Sighvati er mikið niðri fyrir í þessum skrifum sínum: "Svona er talað ef munnurinn talar hratt en hugsunin talar hægt. Góðviljaðir menn í Framsóknarflokknum - en þeir eru margir - ættu að reyna að veita svolitla aðstoð. Ekki bara vegna þingmannsins heldur miklu frekar vegna okkar hinna sem þurfum að hlusta á svona lagað. Annaðhvort þarf að þjálfa þingmanninn í að láta hugsunina tala hraðar - eða láta munninn tala hægar."