Segir vigdísi fara með fleipur

Stefán Ólafsson prófessor við Háskóla Íslands segir að formaður fjárlaganefndar Alþingis hafi farið með rangfærslur í viðtali við Ríkisútvarpið á mánudag. Vigdís Hauksdóttir hafi sagt hlutfall öryrkja á vinnumarkaði vera hærra á Íslandi en á Norðurlöndunum. Það segir Stefán rangt.
 
Hann skrifaði færslu á Eyjuna

 þar sem hann bendir á það sem hann finnur að ummælum Vigdísar. Stefán segir að hlutfall öryrkja hér á landi sé svipað og í Danmörku en að það sé talsvert lægra en í Finnlandi, Noregi og Svíþjóð. Því hafi Vigdís farið með rangt mál þegar hún sagði að hér á landi væru um 9% fólks á vinnumarkaði á örorkubótum en um 2% á hinum Norðurlöndunum.

 

 

\"Þetta er bara mjög rangt. Að vísu er þetta kannski frekar hátt miðað við þær þjóðir sem eru á lægra hagsældarstigi og með veikara velferðarkerfi eins og í Suður- og Austur- Evrópu, en miðað við þær þjóðir sem við venjulega berum okkur saman við þá er þetta ekkert óeðlilegt,“ sagði Stefán í Morgunútgáfunni í morgun.

Tryggingarstofnun kynnt fjárlaganefnd tölur um hlutfall öryrkja. Stefán segist sjálfur hafa séð það kynningarefni. „Það er nú bara einfaldlega þannig að formaðurinn hefur tekið þetta inn ranglega,“ segir Stefán í Morgunútgáfunni á RÚV.