Hildur Björnsdóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir veru Dags B. Eggertssonar borgarstjóra í þverpólitískri nefnd trufla afgreiðslu braggamálsins. Nefndinni var falið að móta tillögur að viðbrögðum við þeim ábendingum sem er að finna í skýrslu innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar vegna málsins. Mbl.is greinir frá.
Hildur hefur áður kallað eftir því að Dagur víki úr nefndinni þar sem skrifstofustjóri, sem sá um framkvæmdirnar, hafi heyrt beint undir borgarstjóra og því sé óeðlilegt að hann fari sjálfur yfir málið. Þetta sagði Hildur í samtali við Vísi fyrir jól.
Hún segir veru Dags í nefndinni vera orðið aðalumræðuefnið tengt málinu og því farin að trufla það. „Við gagnrýndum það strax í upphafi þegar til þessarar nefndar var stofnað að borgarstjóri sæti í henni. Við ákváðum hins vegar að taka sjálf sæti í henni til þess að reyna að gera gagn og til að koma í veg fyrir að annað eins mál gæti endurtekið sig. Okkur fannst líka ótækt að meirihlutinn einn myndi einhvern veginn vinna úr þessu máli“, segir Hildur í samtali við Mbl.is.
Hún segir að forsendur fyrir vinnu sem miði að trúverðugri niðurstöðu séu brostnar gangi Dagur ekki að kröfu hennar um að víkja. Skynsamlegast þætti henni að það kæmi inn einhver hlutlaus aðili í hans stað. „Það gæti verið einhver frá innri endurskoðun sem kom að gerð skýrslunnar eða jafnvel einhver stjórnsýslufræðingur sem gæti komið með gott innlegg í einhverjar stjórnkerfisbreytingar. Það gæti þá verið einn frá meirihluta og einn frá minnihluta og einhver hlutlaus aðili,“ segir Hildur auk þess í samtali við Mbl.is.