Það er að verða hefð að íslenskir kvikmyndaleikstjórar sendi stjórnvöldum hér á landi pilluna þegar þeir taka við verðlaunum fyrir bestu kvikmyndina á Norðurlöndunum, en árleg listaverðlaun Norðurlandaráðs voruy afhent með pompi og prakt í Hörpu í gær.
Það reyndist koma í hlut Dags Kára Péturssonar að taka við Norðurlandameistaratitlinum í kvikmyndalist fyrir mynd sína Fúsa, en Benedikt Erlingsson, sem vann til verðlaunanna í fyrra fyrir Hross í oss afhenti kollega sínum verðlaunin í gærkvöld. Dagur Kári glotti út í salinn þegar hann ávarpaði gesti og taldi að mest af verðlaunafénu skilaði sér til baka í ríkissjóð í formi skatta, en hann skuldaði einmitt skattinum peninga - og var mikið hlegið að tilsvari leikstjórans, þó kannski minnst á fremstu bekkjum.
Myndin er fáguð, stílhrein og full af myndrænni hugmyndaauðgi og fjallar um mikilvægi þess að varðveita gæsku sína og sakleysi í óárennilegum heimi.
Fúsi eftir Dag Kára er grípandi og listilega upp byggð kvikmynd sem bregður upp trúverðugri mynd af blíðum risa og hnitmiðuðum lýsingum á konunum sem standa honum næst.“