Háar arðgreiðslur: árni hættir hjá tm

\"Kæra Tryggingamiðstöð. Ég óska hér með eftir upplýsingum um það hvað ég þarf að gera til að segja upp viðskiptum mínum við fyrirtækið.\"

Þannig hefst bréf Árna Snævarr fyrrum fréttamanns sem hann hefur sent TM vegna óánægju. hann hvetur aðra landsmenn til að gera slíkt hið sama, senda bréf og segja upp tryggingumog rökstyður með eftirfarandi hætti:

\"Ástæðan fyrir því að ég undirbý að hætta viðskiptum við fyrirtækið eru fréttir um útgreiðslu arðs sem sem er algjörlega óréttlætanlegur. Það er ekkert nýtt að iðgöld á Íslandi séu há, enda er mörgum i fersku minni hvernig sjóðir Tryggingafélaga voru misnotaðir í aðdraganda hrunsins. Nú bætist við að gróði tryggingafélaga byggist á breytingum á lagaumhverfi vegna tilskipana ESB. Í Fréttablaðinu segir: „Runólfur Ólafsson, hjá FÍB, segir að miðað við framsetningu tryggingafélaganna á hinni nýju reikningsskilaaðferð hafi tjón verið ofáætlað. Því ætti upphæðin að renna til viðskiptavina tryggingafélaganna en ekki vera greidd út sem arður. „Í eðlilegu viðskiptaumhverfi myndi svona ekki ganga.“ \" 
Að sjálfsögðu bíð ég fram yfir aðalfundi, ef svo ólíklega vildi til að fyrirtækið/n sjái að sér en tel sjálfsagt að upplýsa ykkur um að aðgerðir eru í uppsiglingu til að knýja tryggingafyrirtæki til að koma til móts við viðskiptavini sína í stað þess að moka fé út úr fyrirtækjunum. 
Það er kominn tími til að íslenskir neytendur hætti að láta bjóða sér framkomu af þessu tagi. Það skal þó viðurkennt að framkoma ykkar er skárri en VÍS sem hækkaði iðgjöld vegna meintrar slæmrar afkomu, en greiddi síðan út milljarða í arðgreiðslur, segir í bréfi Árna Snævarr til TM.