Ari Skúlason, hagfræðingur hjá Landsbankanum, segir unga fólkið í dag vera hina ,,nýju týndu kynslóð.” Hér vanti að byggja fleiri smærri og ódýrari íbúðir til að gera fleirum í þessum hópi kleift að festa kaup á sinni fyrstu eign. Þá segir Ari fasteignaverð fara hækkandi, en gæði fasteigna séu þó meiri en áður tíðkuðust, meðal annars vegna þess að regluverk hefur breyst.
Ari er meðal viðmælenda í næsta þætti Afsals, sem sýndur verður á Hringbraut næstkomandi fimmtudagskvöld klukkan 21.00. Þar er rætt um þá stöðu sem ungt fólk er í, sem vantar að festa kaup á sinni fyrstu eign. Ásdís Valsdóttir hjá Húsaskjóli og Guðrún Antonsdóttir hjá Garún fasteignamiðlun, taka í sama streng og segja vöntun á fleiri smærri og ódýrari íbúðum. Þær segja þó að síðustu áratugina hafi margt breyst á Íslandi sem taka þarf tillit til, þegar verið er að ræða kaup á fyrstu fasteigninni. Þannig hafi verðmismunur á milli hverfa aukist hér á landi, en hann var nánast óþekktur hér áður fyrr. Erlendis tíðkist það til dæmis ekki að fólk horfi á miðsvæði borga til að kaupa sína fyrstu eign, heldur séu það úthverfin með ódýrari eignum sem verði þá frekar fyrir valinu.
Rakel Sveinsdóttir rýnir í fasteignamálin og ræðir við sérfræðinga um fasteignakaup frá ýmsum sjónarhornum öll fimmtudagskvöld klukkan 21:00 á Hringbraut.