Silja Dögg Gunnarsdóttir, þingkona Framsóknarflokksins, skaut fast á sinn gamla formann, Sigmund Davíð Gunnlaugsson á Facebook í gær þegar hún sagði hann ekki hafa efni á að saka aðra um verkleysi og að hann stundaði „stórskotahríð úr glerhýsi.“
Eftir því sem Fréttablaðið kemst næst sjá hvorki Sigmundur Davíð né forysta Miðflokksins ástæðu til þess að svara Silju Dögg. Jón Pétursson, aðstoðarmaður Sigmundar Davíðs, gat þó ekki orða bundist og kom Sigmundi Davíð til varnar á Facebook í gær þar sem hann sagði meðal annars skrif Silju Daggar vera „ljót, ósönn og rætin.“
Nánar á
https://www.frettabladid.is/frettir/astoarmaur-sigmundar-skrif-silju-daggar-ljot-osoenn-og-raetin