Forráðamenn Viðskiptaráðs Íslands segja að enda þótt fagna beri nýjum samningi milli Íslands og Evrópusambandsins um viðskipti með landbúnaðarvörur sé ekki nóg að gert; verð á matvörum hér á landi verði áfram hærra en annars staðar.
\"Með samningnum skapast ný sóknarfæri fyrir íslenskan landbúnað,\" segir í tilkynningu ráðsins í dag: \"Svigrúm til tollfrjáls útflutnings matvæla til ríkja Evrópusambandsins verður aukið umtalsvert. Má þar helst nefna um 1.500 tonna viðbótarkvóta til útflutnings á lambakjöti (81% aukning) og 3.620 tonna viðbótarkvóta í tilfelli skyrs (ríflega tíföldun). Samningurinn eykur því möguleika innlendra matvælaframleiðenda til vöruútflutnings inn á evrópskan neytendamarkað.\"
\"Að framangreindu sögðu má telja ólíklegt að samningurinn hafi veruleg áhrif til lækkunar matvælaverðs hérlendis. Hinir nýju tollkvótar verða, líkt og áður, seldir hæstbjóðanda af hálfu ríkisins í gegnum uppboðsferli. Samkvæmt áætlun Viðskiptaráðs gætu viðbótartekjur ríkissjóðs vegna útboða nýrra tollkvóta numið allt að 400 m.kr. á ári. Beinn ávinningur neytenda af hinum nýju tollkvótum minnkar sem þeirri upphæð nemur. Verð á tollvernduðum matvælum mun því að líkindum áfram haldast umtalsvert hærra en í öðrum ríkjum,\" segir í tilkynningu ráðsins.