"Best að segja það strax," skrifar Páll Magnússon, fyrrverandi útvarpsstjóri og fréttastjóri í fyrsta pistli sínum á hringbraut.is "að ef kosið yrði um það í dag hvort Ísland ætti að ganga í Evrópusambandið myndi ég segja nei." Og hann heldur áfram: "Ef kosið yrði um það hvort núverandi ríkisstjórn ætti að halda áfram þeim aðildarviðræðum sem síðasta ríkisstjórn hóf myndi ég líka segja nei." Enn skrifar Páll: " Ef ég væri spurður hvort Alþingi ætti að slíta formlega þeim viðræðum sem nú liggja á klaka myndi ég segja nei í þriðja sinn."Og af hverju er Páli svona niðri fyrir: "Kannski bara af því að ég má það; ég hef nefnilega lengst af verið í störfum þar sem þykir óæskilegt að menn séu mikið að viðra skoðanir sínar. En líka til að fyrirbyggja þann misskilning að allir sem skrifa hér á Hringbraut eða stjórna hér sjónvarpsþáttum séu „gargandi aðildarsinnar“.
Páll stýrir nú þjóðmálaþættinum Þjóðbraut á sjónvarpsstöðinni Hringbraut á fimmtudagskvöldum klukkan 21.00, en skrifar auk þess reglulega pistla á hringbraut.is. Hann segir jafnframt í þessum nýja pistli sínum um aðild eða ekki aðild: "Ég á raunar erfitt með að skilja tilfinningahitann í þessu máli. Mér finnst þetta vera ískalt efnahagslegt og pólitískt álitaefni - með rökum með og á móti. Þeir sem eru hlynntir aðild eru ekki landráðamenn og þeir sem eru andvígir aðild eru ekki einangrunarsinnar."
Lestu pistil Páls í heild sinni hér.
Hér getur þú horft á Þjóðbraut á Hringbraut.