„Allt bendir til, að hryðjuverkin í París séu verk róttækra múslima. Sé svo, má segja, að þriðja heimsstyrjöldin sé hafin,“ skrifar ritstjórinn gamalkunni, Jónas Kristjánsson í bloggpistli.
Hann rökstyður þessa dramatísku spá með því að Frakkland hafi lokað landamærum. Önnur lönd muni loka landamærum fyrir múslimum og reka fjölskyldulausa flóttamenn til síns heima.
„Tími fjölmenningar er liðinn og í staðinn risinn stríðstími haturs á múslimum. Að venju koma slík stríð einkum niður á meinlausu fólki. Hryðjuverk og afleiðingarnar gera það alltaf. Flokkar múslimahaturs munu sækja bratt í kosningum og breyta viðhorfum heilla ríkja til trúarbragða múslima. Moskum wahabíta verður lokað og söfnuðum þeirra tvístrað.“
Greining ritstjórans er á skjön við viðbrögð íslensks alþjóðastjórnmálanema sem Hringbraut ræddi við í gær. Finnbogi Rútur Finnbogason, sem á konu sem fékk tvö skot í sig í hryðjuverkaárásinni, sagði í frétt Hringbrautar að Frakkar séu nægilega miklir heimsborgarar til að „gelta ekki of snemma“ og átti þá við fyrirfram dómhörku eða draga ályktanir of hratt eða ranglega. Menn líti svo á sem um hryðjuverk sé að ræða, sem sé sérstakrar gerðar og beri að líta á sem einangrað tilvik fremur en að kalla megi dæmandi fyrir fjölmenna hópa.