Þöggun um jafnréttisbaráttu úti á landi

Valgerður H. Bjarnadóttir, fyrsta framkvæmdastýra Jafnréttisstofu og jafnfréttisforkólfur til áratuga, segir að þöggun hafi ríkt um mikilvægi jafnréttisbaráttu utan höfuðborgarsvæðisins og þátt þeirrar baráttu í umbótum sem náðst hafa.

Þetta kemur fram í pistli sem Valgerður ritar á fésbóksíðu sína eftir að hafa horft á myndina \"Hvað er svona merkilegt við það?\"

Myndin var sýnd á Rúv í dymbilvikunni og Valgerður segir hana stórskemmtilega en spyr vegna titils myndarinnar og Reykjavíkuráherslu:

\"Jú, það sem er merkilegast við þá mynd er hversu mikil þögn (þöggun) ríkir þar um allan þann þátt sem landsbyggðin átti í kvennahreyfingu síðustu áratuga 20.aldar. Myndin er kynnt svona: \"Myndin rekur sögu Kvennalistans og annara kvenfrelsishræringa á gróskumiklum tímum og hvað gerist þegar grasrótarsamtök storma inn í hið skipulagða kerfi.\" En það er ekki ein einasta sena eða setning um starfið og baráttuna utan höfuðborgarsvæðisins. Það hefði ekkert verið að því að gera mynd um starfið í Reykjavík og nágrenni, en þá er sanngjarnt að nefna það í kynningu.\"

Af þessu tilefni birtir Valgerður á fésbókarsíðu sinni nokkrar myndir af Akureyrarstarfinu í kringum Jafnréttishreyfinguna, Kvennaframboð og Kvennalista og storminn í skipulagða kerfinu í kjölfarið.

\"Það gæti nú orðið áhugaverð verðlaunamynd.\"