Segir þjóðarsjóð ranga forgangsröðun

Mér finnst bara forgangsröðunin röng. Það er ekki kominn tími til að fara að leggja í sjóð erlendis. Ég skil það að mönnum gengur gott til en þetta er ekki góð ráðstöfun að mínu mati,“ segir Frosti Sigurjónsson, fyrrverandi formaður efnahags- og viðskiptanefndar og þingmaður Framsóknarflokksins, um frumvarp fjármálaráðherra um þjóðarsjóð.

Frosti sem situr nú í bankaráði Seðlabankans sendi í vikunni efnahags- og viðskiptanefnd umsögn um frumvarpið þar sem hann hvetur alþingismenn til að hafna frumvarpinu.

Hann segir að það sé mikilvægara að halda áfram að greiða niður skuldir ríkissjóðs sem séu 600 milljarðar auk þess sem lífeyrisskuldbindingar nemi um 620 milljörðum. „Þessar skuldir bera allar vexti sem skattgreiðendur þurfa að bera.“

Nú þegar eigi ríkið hreinan gjaldeyrisvaraforða upp á 670 milljarða en markmiðið sé að framtíðarstærð þjóðarsjóðsins verði 250-300 milljarðar.

Samkvæmt frumvarpinu er markmið sjóðsins að treysta stöðu ríkissjóðs til að geta mætt ófyrirséðum áföllum. „Ég spyr mig að því hvort við séum búin að gera allt annað sem þarf að vera til taks. Við höfum ekki fjárfest í þeim öryggis- og viðlagabúnaði sem þarf í landi þar sem náttúruhamfarir eru tíðar.“