Segir það hafa legið fyrir að ríkisstjórnin myndi ekki setja á hátekjuskatt

Katrín Jak­obs­dótt­ir, for­­sæt­is­ráð­herra, segir að það hafi legið fyrir frá því að núver­andi rík­­is­­stjórn var mynduð að hún væri ekki að „fara í hátekju­skatt“, í sam­tali við Morg­un­út­­varpið á Rás 2 í morg­un. Aðspurð hvort að kynnt­­ar verði frekari breyt­ing­­ar á skatt­­kerf­inu, þá svar­aði Katrín að rík­­is­­stjórnin hefði kynnt sín­­ar skatta­breyt­ing­­ar í gær. Hún sagði jafn­­framt að til­­lögur rík­­is­­stjórn­­­ar­innar séu að umfangi um þrjá­tíu millj­arðar á um þremur árum og þetta séu allt kerf­is­breyt­ingar sem stuðli að miklum sam­­fé­lags­­legum umbót­­um.

Nánar á

https://kjarninn.is/frettir/2019-02-20-segir-thad-hafa-legid-fyrir-ad-rikisstjornin-myndi-ekki-setja-hatekjuskatt/