Vaxtabæturnar eru með fjárlögum ársins 2016 skornar niður um 1,5 milljarða og barnabætur fylgja ekki verðlagi.
Þetta segir Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður VG.
„En ríkisstjórnin heldur áfram að gefa á garðann hjá þeim efnameiri og lækka á þá skatta. Þá spyr maður sig: Hverjir eiga að standa undir velferðarkerfinu og skuldbindingum inn í framtíðina ef okkar kynslóð ætlar ekki að leggja sitt af mörkum miðað við efni og aðstæður ? Það er verið að vinna gegn þrepaskiptu skattkerfi og leggja það niður í áföngum, fleiri skattþrep eru miklu sanngjarnari gagnvart þeim tekjuminni. Eflaust hefði mátt endurskoða eitthvað prósentutöluna í því þrepaskipta skattkerfi sem komið var á á síðasta kjörtímabili og einnig bilið á milli þrepa. En fækkun þrepa þýðir bara eitt; það eru lægri skattar á þá efnameiri,“ segir þingmaðurinn.
Lilja Rafney segir að ríkisstjórnin hafi forgangsraðað í þágu ríka fólksins.
„Ríkisstjórnin hefur frá því að hún tók við völdum afsalað sér tekjum allt að 45 milljörðum í formi skatta, auðlegðarskatts, orkuskatts, veiðigjalda, vörugjalda og tolla sem taka eiga gildi nú um næstu áramót í tveimur áföngum. En við skulum heldur ekki gleyma því að þessi ríkisstjórn hækkaði matarskattinn svo um munaði, úr 7% í 11% og lagði þar með þungar álögur á almenning. Ýmiss konar beinn kostnaður hjá almenningi er aukinn, bæði í heilbrigðis- og menntakerfinu. Það er gamalkunnur leikur hægri manna að tala fyrir lágum sköttum en íþyngja svo almenningi með beinum þjónustugjöldum sem koma verst niður á þeim tekjuminni,“ segir Lilja Rafney í grein sem hún sendir Hringbraut og bregst þar m.a. við sjónvarpsþætti Kvikunnar á mánudag þar sem leitað var skýringar á því að óánægja ríkir víða í samfélaginu með skiptingu fjármuna þrátt fyrir efnahagsbata og góðæri.
„Við hefðum getað gert ýmislegt við þá 45 milljarða sem ríkisstjórnin hefur afsalað sér í tekjum frá því að hún tók við árið 2013. Þar má nefna uppbyggingu Landspítalans og önnur þjóðþrifamál, eins og bætt kjör elli- og örorkulífeyrisþega og innviðauppbyggingu samfélagsins. En þessi ríkisstjórn hefur valið að vinna fyrst og fremst með þeim efnameiri en skilja eftir þá sem minna mega sín. Þeir sitja eftir og það er bara staðreynd. Ójöfnuður í landinu er að aukast hratt og margar vísbendingar eru til þess að við séum að kynda upp í sömu atburðarrás og olli Hruninu fyrir 8 árum og að sömu flokkarnir beri þar megin ábyrgð á með aukinni misskiptingu og vondri efnahagsstjórn. Alltof stórir hópar eru að festast í fátæktargildru, veruleiki sem við sem rík þjóð eigum ekki að láta viðgangast. Allt tal um að nú sé skollið á blússandi góðæri sker í eyrun þar sem það nær bara til þeirra útvöldu en þorri landsmanna stendur í þeim sporum að berjast við það að ná endum saman um hver mánaðarmót,“ segir Lilja Rafney þingmaður.