Jóhannes Þ. Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, tekur ekki vel í hugmyndir um að takmarka notkun flugelda hér á landi, að því fram kemur í kvöldfréttum RÚV í kvöld.
Þar var meðal annars rætt við Þórólf Guðnason, sóttvarnarlækni, sem situr starfshópi á vegum umhverfisráðherra sem á að skila inn tillögum um hvort og með hvaða hætti eigi að takmarka notkun flugelda.
„Það er nauðsynlegt að draga úr þessu á einhvern máta og koma þannig til móts við einstaklinga sem eru viðkvæmir fyrir og fá veruleg einkenni út úr þessari mengun. Það er ekki nokkur spurning,“ segir Þórólfur.
Jóhannes bendir hins vegar á að ferðamenn komi til Íslands til að upplifa sjónarspilið sem fylgi flugeldanotkun. „Þeir eru vissulega að koma hérna um áramótin kannski frekar en um jól til þess að upplifa að hluta til það sjónarspil sem er hér í flugeldunum á gamlárskvöld.
Við sjáum að það er efni sem er mikið deilt á samfélagsmiðlum og er góð auglýsing líka fyrir Ísland sem ferðamannaland. Þannig að það er svona fleira sem hangir á spítunni en svifryk þegar menn horfa til þess hvort það eigi að grípa eitthvað inn í flugeldana eins og þeir eru í dag,“ segir Jóhannes.
„Ég held að út frá sjónarmiðunum um það hversu mikil verðmæti við viljum skapa af ferðamennsku á Íslandi þá held ég að bann á flugeldum á gamlárskvöld væri ekki góð hugmynd.“
Segir takmörkun á notkun flugelda geta fækkað ferðamönnum
Fleiri fréttir
Nýjast