Hlín Einarsdóttir segir Malín Brand, systur sína, hafa logið í fjölmiðla um aðkomu sína að fjárkúgunarmálinu á hendur forsætisráðherra. Hún hafi verið með í málinu frá upphafi til enda, en ekki dregist inn í það eins og hún hefur haldið fram í fjölmiðlum.
Þetta kemur fram í einkaviðtali helgarblaðs DV við Hlín sem birtist í blaðinu í dag, en hún segir þar að hún vildi geta tekið til baka það sem hún gerði af sér í fjárkúgunarmálinu. Af viðtalinu að dæma kennir hún glímu við geðraskanir um hvernig farið hafi, en nefnir þar einnoig fjárhagsörðugleika til sögunnar. Hlín segist hafa verið lokuð inni á geðdeild í viku eftir að málið komst í hámæli.
Í viðtal er rætt ítarlega við Hlín sem hefur játað að hafa reynt að kúga átta milljóna króna út úr Sigmundi Davíð Gunnlaugssyn forsætisráðherra og fjölskyldu hans. Í viðtalinu þvertekur hún fyrir það að Malín Brand, systir hennar, hafi aðeins verið saklaus og ómeðvitaður ökumaður í ferð hennar eftir fénu. Hlín segir hana hafa tekið fullan þátt í fjárkúguninni frá upphafi til enda, en tekur fram að þær systur hafi ekki rætt saman eftir að málið komst í hámæli.
Nokkra athygli vekur að Hlín velur DV sem vettvang þessa viðtals en útgefandi blaðsins er fyrrverandi sambýlismaður hennar, Björn Ingi Hrafnsson, en fjárkúgunin hékk á þeirri spýtu að til væru gögn hjá miðlinum sem sönnuðu að Sigmundur Davíð hefði haft beina aðkomu að fjármögnun Björns Inga á DV.