Sá orðhvati og sískrifandi þjóðmálarýnir, Jónas Kristjánsson segir erfitt að skilja styrjaldir ríkisstjórnarinnar við alla þá sem minna mega sín, en pistill hans í dag er tileinkaður ríkisstjórninni.
Í þessum efnum sé allt á einu og sömu bókina lært, allt frá frá gamlingjum til öryrkja og yfir í þá sem vinna neyðarþjónustu í verkföllum: \"Samkvæmt umræðu almennings skefur þetta fylgið utan af ríkisstjórninni,\" skrifar Jónas og undrast að Sigmundur og Bjarni og þeirra lið allt saman haldi áfram af stjórnlausum ofsa eins og andsetnir séu.
Hann segir þetta fólk ekki fatta framtíðina, til dæmis ekki kosningar 2017: \"Þetta er nefnilega ofsatrúarflokkur spámannsins Hannesar Hólmsteins. Hann sagði „græðgi er góð“ og allt valdagengið fellur fram froðufellandi og tilbiður spámanninn. Þannig urðu ríkið, fyrirtæki, stofnanir og samtök óstarfhæf af völdum óseðjanlegrar græðgi, sem jaðrar við sjálfsvíg,\" skrifar reynslumikli ritstjórinn á vefsvæði sitt í dag.