Segir stjórnvöld brjóta lög

Ríkisstjórnin hyggst leggja fram frumvarp sem myndi heimila ráðherra fiskeldismála að veita fyrirtækjum rekstrarleyfi til bráðabirgða. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og umhverfis- og auðlindaráðherra segja frumvarpið til þess fallið að gæta meðalhófs í samskonar ákvörðunum en lögmaður náttúruverndarsamtaka og veiðiréttarhafa segir stjórnvöld brjóta gegn lögum með frumvarpinu.

 

Gefi fyrirtækjum tækifæri til þess að gera úrbætur í samræmi við lög

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra segir að verði frumvarpið samþykkt væri hægt að gæta að meðalhófi, athuga hvort unnt væri að forða verðmætatapi og skoða í leiðinni umhverfisþætti og samfélagsþætti. 

Þá segir hann ákvæði frumvarpsins vera samskonar þeim sem eru í lögum um hollustuhætti og sömuleiðis í lögum sem lúta að bygginga og skipulagsmálum. Uppfylli umsækjendur kröfur um bráðabirgðaleyfi veiti það fyrirtækjum tækifæri til þess að gera úrbætur sem uppfylla lög og reglur í stað þess að fara í stærri aðgerðir. 

„Í stað þess að hús sé rifið á stundinni að þá séu gefin tækifæri til þess að gera úrbætur,“ segir Kristján Þór.

Óttar Yngvason, lögmaður náttúruverndarsamtaka og veiðiréttarhafa, segir stjórnvöld ekki hafa heimild í lögum fyrir fyrirhuguðu frumvarpi. Jafnframt segir hann engan grundvöll vera fyrir því að fara framhjá eðlilegu ferli sem væri að leggja mál fyrir dómstóla líkt og fyrirtækin hafa hug á að gera.

Nánar á

http://www.visir.is/g/2018181008901