Segir stjórnina smyrja ofan á lánin

Finnur Árnason forstjóri Haga gagnrýnir óábyrga hækkun á verði smjörs sem annað tveggja skili sér ekki til bænda og muni einkum og sér í lagi valda hækkun á verðtryggðum lánum landsmanna.

Finnur ritar grein þessa efnis í Fréttablaðið í dag og hvetur þar stjórnvöld til að draga til baka boðaða 11,6% hækkun á smjöri sem ákveðin var laugardaginn 18. júní og eigi að taka gildi 1. ágúst \"ef ráðherra endurskoðar hana ekki.\"

Finnur kveðst ekki skilja í hverra þágu þessi boðaða verðhækkun sé því að athygli veki að \"að lítill hluti hækkunarinnar gengur til bænda og auknar álögur eru settar á neytendur.\"

Hann metur það svo að háttalag stjórnavlda af þessu tagi geti vel étið upp ávinning skuldaleiðréttingarinnar á nokkrum árum: \"Aukist verðbólga um 1% varanlega þurrkast ávinnungur vegna þessarar viðamiklu aðgerðar út á 5 - 6 árum,\" skrifar Finnur og minnir í því sambandi á að hvert prósentustig verðbólgunnar kosti 13 til 14 milljarða í auknum skuldum.

Stjórnvöld verði því að hafa hemil á sér: \"Vísitala neysluverðs hækkaði frá október 2013 þar til nú um 3,56%. Smjörhækkunin er rúmlega þreföld hækkun vísitölu neysluverðs. Hækkunin mun valda verðbólgu, meiri en tilefni er til. Neytendur borga hærra verð fyrir smjörið og lán skuldsettra heimila hækka. Ákvörðunin veldur því tvöföldum skaða.\" 

Hann segir að stjórnvföld fari hér í blóra við nýgerða samninga en þar megi lítið út af bera svo forsendur haldist og þar af leiðandi sé brýnt að aðhalds sé gætt í verðlagsmálum og verðbólgu haldið í skefjum. \"Meðan framangreint  í huga er ákvörðun stjórnvalda um að hækka smjög um 11,6% óskiljanleg,\" skrifar hann og segir að þau geti sýnt gott dordæmi með því að draga hana til baka, fordæmi sem muni \"eiga stóran þátt í að auka kaupmátt íslenskra heimila.\"