Segir stjóra rúv fara með ósannindi

Guðlaugur Þór Þórðarson, varaformaður fjárlaganefndar segir tölvupósta milli Inga Hrafns Óskarssonar, fráfarandi formanns stjórnar RÚV annars vegar og starfsmanns fjármálaráðuneytisins hins vegar sýna að forystumenn RÚV hafi veitt þingnefndinni rangar upplýsingar um fjárhag RÚV.

Þetta kemur fram í samtali Morgunblaðsins við þingmanninn í dag, en þar segir hann að stjórnendur RÚV hafi ranglega fullyrt að ráðuneytið hafi með tölvupósti í vor staðfest að RÚV hafi fullnægt skilyrðum fyrir 182 milljóna aukaframlagi í rekstur stofnunarinnar.

Fjárlaganefnd muni á næstu dögum ræða viðbrögð vegna þessa: \"Þessir tölvupóstar sýna að fuullyrðing RÚV stenst ekki,\" segir Guðlaugur við blaðið í morgun: \"Þær upplýsingar sem nefndin fékk frá forustumönnum RÚV voru ekki réttar. Það er alvarlegt mál,\" segir hann.

Eins og fram kemur í annarri frétt um RÚV hér á fréttasíðum Hringbrautar hefur Ingvi Hrafn Óskarsson óskað að stíga til hliðar sem stjórnarformaður RÚV og ber hann við önnum í öðrum störfum sínum.