Segir sterka menn úr Sjálfstæðisflokknum hafa hótað sér: „Hótuðu mér öllu illu ef ég myndi ekki láta mig hverfa“

Seint í gærkvöld var greint frá því að Ásgeir Sveins­son hefði verið kjörinn oddviti Sjálf­stæðisflokksins í Mosfellsbæ. Aðrir og próf­kjörs­fram­bjóðendur hafa nú sakað Ásgeir um að hafa stundað óheiðarlega kosningabaráttu. Frá þessu greinir Mbl.is.

Það eru þær Kol­brún G. Þor­steins­dótt­ir, bæj­ar­full­trúi sem sóttist einnig eftir oddvitasætinu, og Krist­ín Ýr Pálm­ars­dótt­ir vara­bæj­ar­full­trúi bera Ásgeir þessum þungu sökum.

Kolbrún segist meðal annars hafa fengið hótunarsímtöl frá stuðningsmönnum Ásgeirs síðustu tvö ár. Hún segir að sér hafi verið hótað öllu illu ef hún myndi ekki láta sig hverfa. Og þá segir hún þessar hótanir vera ástæðu þess að hún þurfti að hætta sem formaður bæj­ar­ráðs.

„Ég hef fengið hót­un­ar­sím­töl frá stuðnings­mönn­um hans síðustu tvö ár. Það var ým­is­legt sem gerðist á kjör­tíma­bil­inu þar sem að sterk­ir menn í flokkn­um hótuðu mér öllu illu ef ég myndi ekki láta mig hverfa. Það var meðal ann­ars ástæða þess að ég þurfti að hætta sem formaður bæj­ar­ráðs.“ sagði Kolbrún.

Hún sakar Ásgeir um að hafa notað íþrótta­hreyf­ing­una og stór­an bygg­ing­ar­verk­taka í bæn­um til að vinna gegn sér íprófkjörsbaráttunni, og þá hafi umræða um fjármál fyrrverandi eiginmanns hennar einnig verið notuð til að koma höggi á Kolbrúnu.

Kolbrún segist ætla að ljúka kjörtímabilinu, en ekki ætla að kjósa flokkinn í komandi kosningu, en Krist­ín Ýr segist ekki ætla að klára kjörtímabilið og hefur sagt sig úr flokkn­um.