Jóna Sólveig Einarsdóttir, alþjóðastjórnmálafræðingur og fyrrum þingmaður og varaformaður Viðreisnar, skýtur föstum skotum í átt að Sósíalistaflokki Íslands í aðsendri grein á Vísi í dag. Tilefnið er viðtal Sönnu Magdalenu Mörtudóttur, oddvita Sósíalista, á Rás 1 í morgun, þar sem hún sagði að samstarf við Viðreisn kæmi ekki til greina:
Ég held svo að í samræðum um meirihlutasamstarf að þá er líklegt að Viðreisn kæmi alltaf til dæmis að borðinu þar. Við Sósíalistar lítum á Viðreisn sem enn eitt afl nýfrjálshyggjunnar sem er eitthvað sem við tölum gegn og við leggjum mikla áherslu á að draga úr áherslum nýfrjálshyggjunnar á samfélagið. Þannig að við viljum ekki ganga inn í eitthvað þar sem við þyrftum að slá af kröfum okkar af því að við ætlum ekkert að gefa afslátt af því.“
Nánar á eyjan.dv.is;