Segir smálánafyrirtækin brjóta lög

Vilhjálmur Bjarnason alþingismaður segist þeirrar skoðunar að smálánafyrirtækin séu að brjóta lög þegar þeir skuldfæra fyrir lánum og kostnaði af bankareikningum einstaklinga.

Um þetta var rætt í þættinum Ég bara spyr sem sýndur var á Hringbraut í gærkvöld. Í síðustu viku, sagði Bryndís Þóra Jónsdóttir frá því að bankareikningur dóttur hennar hefði verið tæmdur þann 1.september síðastliðinn vegna skuldar frá hausti 2012. Skuldin var 80 þúsund króna lán, en með kostnaði voru skuldfærðar um 170 þúsund krónur af reikningnum hennar.

Þáttinn í gær má sjá hér í klippum eða heild á hringbraut.is, en Vilhjálmur telur þar að smálánafyrirtækin hafi ekki leyfi til að haga sér með þessum hætti.

Bjarkey Gunnarsdóttir, þingmaður Vinstri grænna, segir brýnt að ríkisstjórnarflokkarnir leggi fram frumvarp þar sem reynt verður að stöðva þessi fyrirtæki. Hún segist telja einhug um það hjá öllum flokkum, en til að hraða afgreiðslu væri best að tillaga kæmi fram frá núverandi ríkisstjórn.

Meira um smálánin í þætti kvöldsins, en hann er í umsjón Rakelar Sveinsdóttur.

Ég bara spyr er sýndur á Hringbraut í dag.