Segir skólastjóra varmárskóla vanhæfan: „þau eru vísvitandi að eyðileggja nám hennar og framtíðarmöguleika“

Móðir stúlku sem stundar nám í 10. bekk við Varmárskóla í Mosfellsbæ gagnrýnir skólastjóra og skólaskrifstofu harðlega og telur bæði vanhæf.

Móðirin var í viðtali við Morgunblaðið fyrr á þessu ári undir fyrirsögninni „Dóttir mín vill ekki lifa!“ Á þeim tíma beið fjölskylda eftir fullnaðargreiningu frá BUGL en dóttir hennar glímir við alvarlegt þunglyndi er einhverf og með hegðunarvandamál.

Sett í gluggalausa kompu

Stúlkan var áður í Dalbrautarskóla en móðir hennar hefur ítrekað sótt um að dóttir hennar fái viðeigandi hjálp og fái svokallaða sjúkrakennslu. Það hefur ekki gengið eftir og var henni gert að mæta í Varmárskóla þrátt fyrir mótmæli foreldra sem segja hana hafa orðið fyrir miklu einelti þar þegar hún var yngri.

Í viðtali við Morgunblaðið í dag segir móðir stúlkunnar að þeim hafi verið lofað sér rými fyrir dóttur þeirra og fengi hún í heildina þriggja tíma sérkennslu á dag. Það hafi gengið á ýmsu og að lokum var dóttir hennar sett í gluggalausa kompu og hefur hún aðeins fengið kennslu í eina klukkustund og tuttugu mínútur á dag.

Þann 11. október síðastliðin barst móðurinn svo tölvupóstur frá skólastjóranum og henni tilkynnt að dóttir hennar fengi heimakennslu frá og með 15. október. Síðan þá hefur kennari mætt heim til þeirra og kennt henni íslensku og ensku í rúmlega eina klukkustund á dag.

„Skólastjórinn er sem sagt búinn að ákveða að veita eins litla kennslu og hægt er og sleppa stærðfræðinni, og þar með mun hún ekki ná 10. bekkjar prófi, skólayfirvöld Mosfellsbæjar eru búin að ákveða þetta, þau eru vísvitandi að eyðileggja nám hennar og framtíðarmöguleika,“ segir móðirin í viðtali við Morgunblaðið.

Segir hún skólann ekki þurfa að taka neina ábyrgð á málinu og er hún virkilega ósátt við framvindu máls enda sé um framtíð dóttur hennar að ræða.

Ýtarlega er fjallað um málið í Morgunblaðinu í dag.