Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar kveðst afar ánægður með þann fjölda sem ritað hefur nafn sitt á undirskriftalista Endurreisnar til stuðnings bættu heilbrigðiskerfi. Gagnrýni sjálfstæðismanna skrifar hann á reikning hvatvísi.
\"Þetta er býsna gott á ekki lengri tíma. Ég væri ekkert hissa á því að við værum komin í 50 þúsund um miðja vikuna.” segir hann í samtali við Kjarnann: \"Því ég held að þetta sé almennt það sem fólk vill. Gera menn sér virkilega ekki grein fyrir því að við erum í raun að fallast á að fólk þjáist meira hér en annars staðar með því að fjármagna ekki heilbrigðiskerfið eins og nauðsynlegt er,\" spyr Kári.
Eins og Kjarninn bendir á í frétt sinni hafa þingmenn Sjálfstæðisflokks, þeir Jón Gunnarsson og Brynjar Níelsson, gagnrýnt Kára fyrir undirskriftarsöfnunina og farið fram á að hann útskýri hvar eigi að skera niður á móti ef 11 prósent af vergri landsframleiðslu eigi að fara inn í rekstur heilbrigðiskerfisins, en ekki 8,7 prósent eins og nú er.
Kári gefur lítið fyrir þessa gagnrýni: \"Heilbrigðiskerfið er það kerfi sem við notum til að hlúa að þeim veiku í okkar samfélagi. Og með því að fjármagna það eins og við höfum verið að gera erum við að fallast á að lasnir og meiddir eigi að þjást meira en nauðsynlegt er,” segir hann og bætir við: \"Mín tillaga er sú að fjármagna heilbrigðiskerfið fyrst, áður en við förum að skipta kökunni á milli annarra málaflokka. Þessir tveir þingmenn virðast vera hræddari við skattahækkanir en þjáningar og dauða.”
Kári skrifar ummæli Jóns og Brynjars á hvatvísi og vonast til þess að ummæli þeirra hafi ekki unnið flokki þeirra of miklu tjóni, en grein Kára um málið á fésbók hans er eftirfarandi:
\"Tveir þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa gagnrýnt mig fyrir að standa fyrir undirskriftarsöfnun til stuðinings þeirri kröfu að við verjum 11% af vergri landsframleiðslu í rekstur heilbrigðiskerfisins án þess að benda á hvar eigi að skera niður á móti.
Svar við þessu er einfalt. Heilbrigðiskerfið er það tæki sem við notum til þess að hlúa að meiddum og sjúkum í okkar samfélagi. Við hljótum að gera þá kröfu til heilbrigðiskerfisins að það leyfi okkar að gera þetta eins vel ogtíðkast í löndunum í kringum okkur. Ef við heykjumst á því að fjármagna kerfið að því marki að það geti þetta erum við að fallast á að lasnir og meiddir á Íslandi þjáist meira og deyi frekar eða fyrr en þeir myndu gera í löndunum í kringum okkur. Þetta er einföld mynd en raunveruleikanum samkvæm. Það er ekki í samræmi við þær hugmyndir sem við Íslendingar höfum um okkur sjálf að fórna fólki fyrir brauð. Þar af leiðandi legg ég til að við byrjum á því að fjármagna heilbrigðiskerfið þannig að geti sinnt skyldum sínum á borð við það sem tíðkast í löndunum í kringum okkur áður en við förum að skipta kökunni milli annarra málaflokka.
Þingmennirnir tveir úr Sjálfstæðisflokknum gefa það í skyn að þeir haldi að við höfum ekki efni á svona heilbrigðiskerfi og eru hræddari við skattahækknir en þjáningar og dauða samborgara sinna. Þeir eru hins vegar báðir góðir og hjartahlýir menn og þess vegna ætla ég að skrifa þessa vitleysu þeirra á hvatvísi og hættulega tryggð við formann flokks þeirra sem þarf einmitt á því að halda að einhver segi honum til vamms í stað þess að etja honum á það exelskjala forað sem hann virðist svo elskur að. Við skulum vona að með þessu hafi þingmennirnir tveir ekki valdið flokki sínum of miklu tjóni vegna þess að það vill nefnilega svo til að velferðarkerfið sem okkur er svo annt um varð til á vakt þessa flokks sem hefur svo oft verið boðberi þeirrar félagshyggju sem honum finnst hann eigi að vera á móti.\"
.