„Sjálfstæðismenn ætla að hirða bankana - strax á þessu og næsta ári. Þarna liggur það skýrlega fyrir.“
Þetta segir Stefán Ólafsson, prófessor í félagsfræði, á Facebook-síðu sinni í dag. Hann leggur þar út af viðtali við Lárus Blöndal, formann Bankasýslu ríkisins, í Morgunblaðinu í dag.
Lárus lætur þar hafa eftir sér að hann telji að hluti ríkisins bönkum sé söluvænlegri nú heldur en áður, á toppi hagsveiflunnar. Hann segir að niðurstöðu Bankasýslunnar um hvort selja eigi ríkisbankana, Landsbankann og Íslandsbanka, sé að vænta á allra næstu vikum. Fari svo að ákveðið verði að selja ríkisbankana gæti söluferlið hafist á þessu ári og lokið á næsta ári.
Stefáni líst afar illa á slík áform um einkavæðingu bankanna. „Hundruð milljarða af arðgreiðslum sem hafa runnið í ríkissjóð á undanförnum árum renna þá til auðmanna og braskara. Verður það betra fyrir þjóðina? Muna menn reynsluna af einkavæðingu bankanna síðast sem endaði með hruninu?“
Líkt og Kjarninn greinir frá hefur það verið á stefnuskrá stjórnvalda allt frá árinu 2009 að selja hluti í bönkunum, en halda þó eftir stórum eignarhlut í Landsbankanum, 30 til 40 prósent.