Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, segir að Sjálfstæðisflokkurinn hafi á síðustu árum horfið frá þeim gildum, á borð við víðsýni, sem eitt sinn hafi einkennt flokkinn og á þeim forsendum hafi hún fundið sig knúna til að yfirgefa flokkinn og ganga til liðs við Viðreisn, flokk sem hverfist um öll hennar helstu baráttumál á borð við alþjóðasamstarf, jafnrétti og frjálslyndi.
Þetta sagði Þorgerður Katrín í viðtali á Þingvöllum í dagen Páll Magnússon, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, stýrði viðtalinu. Páll varði drjúgum hluta viðtalsins í að spyrja út í fortíð hennar í stjórnmálum, hrunárin og veru hennar í Sjálfstæðisflokknum. Um miðbik þáttarins fann Þorgerður Katrín sig knúna til að segja „Páll ég veit að þú ert í Sjálfstæðisflokknum en mig langar til að fara að tala um framtíðina líka.“
Páll spurði Þorgerði Katrínu hvort hún hefði upplifað andúð af hálfu Sjálfstæðismanna sem hafi litið á brotthvarf Þorgarðar sem svik eða óheilindi gagnvart því sem þeir stóðu fyrir: „Það eru til þeir, einhverjir svona harðkjarna Sjálfstæðismenn gamlir, sem myndu lýsa þessu svona: „heyrðu við bárum þennan stjórnmálamann, þessa stjórnmálakonu á höndum okkar við kusum hana inn á þing, við kusum hana til mestu trúnaðarstarfa, við treystum henni best, við kusum hana, hún var ráðherrann okkar, hún var varaformaðurinn okkar og svo bara fer hún frá okkur,“ segir Páll.
Segir flokkinn snúa baki við eigin gildum
Fleiri fréttir
Nýjast