Segir sjálfstæðisflokkinn eiga íslandsmetið í skuldum

Gunnar Smári Egilsson, sósíalistaforingi, skýtur föstum skotum á Bjarna Benediktsson, fjármálaráðherra og formann Sjálfstæðisflokksins, í færslu sinni á Facebook.

Gunnar Smári nefnir að þegar Bjarni var kosinn formaður árið 2009, hafi Sjálfstæðisflokkurinn skuldað 43 milljónir að núvirði. Nú skuldi hann hinsvegar 422 milljónir, sem hann segir vera Íslandsmet:

„Enginn stjórnmálaflokkur á Íslandi hefur skuldað annað eins.“

Í athugasemdarkerfinu segir Gunnar Smári að eignir flokksins hafi rýrnað, meðan skuldirnar hafi aukist:

„Það er ekki svo að Bjarni hafi slegið lán til að kaupa eignir. Eignir flokksins voru 983 m.kr. á núvirði áramótin 2008/09 áður en Bjarni tók við en voru 812 m.kr. áramótin 2017/18. Eignirnar höfðu því minnkað um 171 m.kr. og skuldirnar aukist um 379 m.kr. Bjarni hefur sólundað 550 m.kr. til að halda sér í embætti.“  

Nánar á

http://eyjan.dv.is/eyjan/2019/02/01/segir-sjalfstaedisflokkinn-eiga-islandsmetid-skuldum-bjarni-hefur-solundad-550-milljonum-til-ad-halda-ser-embaetti/