Ritstjórarnir Atli Fannar Bjarkason, Jónas Haraldsson og Steingerður Steinarsdóttir voru sammála um það í þættinum Ritstjórarnir á Hringbraut í gærkvöld að ríkisstjórnina skorti auðmýkt og forkólfar hennar séu ekki í tengslum við almenning í landinu.
Ritstjórnarnir er nýr vikulegur þjóðmálaþáttur á Hringbraut í umsjá Sigmundar Ernis Rúnarsson, frumsýndur hvert þiðjudagskvöds klukkan 21.30. Í þættinum í gær taldi Atli Fannar Bjarkason ritstjóri Nútímans það vera helsta vanda Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra að hann talaði ekki við nokkurn mann, ekki einu sinni við sinn eigin flokk, hvað þá út fyrir hann. Og þegar hann tæki til máls væri enga öryggistilfinningu að finna í orðum hans.
Jónas Haraldsson ritstjóri Fréttatímans tók undir þessi orð og sagði miklar óvinsældir ríkisstjórnarinnar, sem mælist nú með minni stuðning en vinstristjórn Jóhönnu Sigurðardóttur á miðju síðasta kjörtímabili, mega rekja til þess að forkólfar hennar nái ekki til fólks; þeir virki einfaldlega fjarlægir og áhugalausir um hlutskipti alls almennings. Óþreyjufylgið væri fyrir vikið að magnast og aukast og á að giska þriðjungur kjósenda væri á stöðugu iði og gæti engan veginn bundið sig við einn stjórnmálaflokk.
Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Vikunnar sagði ríkisstjórnina skorta auðmýkt umfram allt annað. Forvígismenn hennar tali alla jafna til fólks en ekki við það. Fólk upplifi rosaleg vonbrigði. Velferðarkerfið væri hrunið og engar vísbendingar væru um uppbyggingu þess. Fyrir vikið fyndi stór hópur fólks til mikils óöryggis í samfélaginu.
Þáttinn er hægt að nálgast í heild sinni undir sjónvarpsflipanum á hringbraut.is og klippur úr honum hér neðar á forsíðunni.