Mjög ólík viðbrögð eru meðal landsmanna með þá ákvörðun Ólafs Ragnars að gefa kost á sér í 6. skipti til embættis forseta Íslands.
Margir hafa fagnað tíðindunum á facebook og víðar. Virðist liggja fyrir að erfitt verði fyrir önnur forsetaefni að ryðja Ólafi úr vegi.
Þeir eru einnig fjölmargir sem gagnrýna forsetann. Þar á meðal er Jónas Kristjánsson, fv. ritstjóri. Hann lætur þá sem ætla að greiða Ólafi atkvæði sitt hafa það óþvegið í pistli og vísar þá einkum til þess að framboð hans muni kæfa niður lýðræðisumbætur.
\"Siðblind valdastétt sér síðasta vígið í Ólafi Ragnari Grímssyni. Framboð hans veitir henni von um, að unnt verði að bregða fæti fyrir hina nýju stjórnarskrá fólksins. Valdastéttin vill ekki fullveldi fólksins, vill hindra, að það taki eigin ákvarðanir,\" skrifar Jónas í nýjum pistli.
Hann heldur áfram: \"Valdakerfið snýst um, að greifar mjólki þjóðarbúið og komi árlega hundrað milljörðum króna í felur. Þeir vilja hindra auðlindarentu og auðlegðarskatt eins og þeir vilja hindra nýju stjórnarskrána. Ólafur Ragnar er klókasti pólitíkus landsins. Hefur ætíð klórað sig út úr afleikjum sínum, fyrst sem klappstýra útrásarinnar og síðan sem pólitískur guðfaðir Sigmundar Davíðs.\"