Segir samþykkt samræði liggja fyrir

Vil­hjálm­ur H. Vil­hjálms­son, lögmaður manns­ins sem kærður hef­ur verið fyr­ir tvö kyn­ferðis­brot í októ­ber síðastliðnum, seg­ir að um­bjóðandi sinn viðurkenni sam­ræði við aðra konuna sem kært hafi.  Það hafi verið með samþykki þeirra beggja.

Þetta kemur fram á mbl.is.

Í seinna til­vik­inu hafi sú sem kær­ir báða menn­ina átt munn­mök við ann­an þeirra í stutta stund. Konan segi að nauðung búi að baki, mökin hafi verið sam­kvæmt skip­un hins. Menn­irn­ir tveir hafni þeirri at­vika­lýs­ing­u al­farið.

Í um­fjöll­un Frétta­blaðsins í gær hermdu heim­ild­ir blaðsins að árás­irn­ar hefðu verið hrotta­leg­ar og að íbúðin hafi verið búin tækj­um til of­beld­isiðkun­ar. 

Mikið ber því í millli orða lögmannsins og heimilda Fréttablaðsins sem telja má að séu komnar frá meintum þolendum nauðgananna.