Dóra Björt Guðjónsdóttir, forseti borgarstjórnar og borgarfulltrúi Pírata, segir samband Vigdísar Hauksdóttur, borgarfulltrúa Miðflokksins, við sannleikann einkennast af sveigjanleika í anda Bandaríkjaforseta.
Þetta segir Dóra Björt á Facebook síðu sinni en tilefnið er ræða Vigdísar í borgarstjórn í kvöld þar sem hún lagði fram tillögu um að „fella niður álögð innviðagjöld“en Degi B. Eggertssyni, borgarstjóra, finnst orðalag tillögunnar vera sniðið að því að skapa hugrenningartengsl á milli innviðagreiðslna og lögbrota.
Vigdís segir á fundi borgarstjórnar að hún telji að innviðagjöldin séu ólögleg en Dóra bendir á að lögfræði sé ekki huglægt mat.
Nánar á
http://www.visir.is/g/2019190309383