Segir salek halda niðri launum

Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness segir að í samkomulagi SALEK-hópsins sé aðeins tekið mið af norrænu vinnumarkaðslíkani að hluta.

Þetta kom fram í samtali Ólafanna Arnarsonar og Ísleifssonar í hagfræðiþönkum þeirra á Hringbraut á fimmtudagskvöld, en þar fór verkalýðsleiðtoginn mikinn eins og stundum áður og kvað fast að orði; samkomulagið sé fallið til þess að halda niðri launagreiðslum, en skorti að taka mið af hávöxtum og verðtryggingum sem launafólki sé gert að rísa undir. 

Ólafarnir eru frumsýndir á fimmtudagskvöldum klukkan 21:30, en hægt er að skoða þá hér á hringbraut.is.

Í þáttum sínum taka Ólafarnir fyrir þau þjóðmál sem eru efst á baugi hverju sinni og greina þau með hagfræðigleraugum sínum.