Segir rúv vera martröð héraðsblaða

Spurningaþátturinn Útsvar er lykill auglýsingadeildar Ríkisútvarpsins að landsbyggðinni. Og hrein og klár martröð fyrir minni héraðsmiðla komist lið svæðisins áfram í keppninni. Þá ryksugi auglýsingadeild Ríkisútvarpsins svæðið.

Þetta segir Magnús Ragnarsson framkvæmdastjóri Sjónvarps Símans. Hann var gestur útvarpsþáttarins Bítið á Bylgjunni nú í morgun þar sem hann ræddi afdráttarlaust meðal annars efni greinar hans sem birtist í Fréttablaðinu á föstudaginn

Magnús segir auglýsingadeild Ríkisútvarpsins stunda grimm undirboð á markaði og sé í raun að kæfa allt og alla með veru sinni á auglýsingamarkaði: \"Með fjóra milljarða í forgjöf í dagskrárefni þá býður Ríkisútvarpið uppá mjög gott dagskrárefni eðli málsins samkvæmt. En þeir eira engu í sölunni. Það er engin önnur ríkisstofnun sem gefur þér sérdíl í lok mánaðar af því að sölumaðurinn er ekki búinn að ná áætlun,“ segir Magnús, en vefurinn visir.is minnir á þessi orð hans í dag  .