Magnús Ragnarsson, framkvæmdastjóri hjá Simanum gagnrýnir Ríkisútvarpið harðlega í aðsendri grein í Fréttablaðinu í hær og segir það ryksuga tekjur úr hverju horni markaðins með svo áköfum hætti að stofnunin sé orðin undirlægja auglýsenda.
\"Staða Ríkisútvarpsins er nú orðin sú sem BBC telur brýnt að forðast,\" skrifar Magnús og útskýrir: \"Hagsmunir auglýsenda stýra dagskrárstefnunni.\" Og hann segir að fyrirmyndin sjálf, breska ríkissjónvarpið, færi nálega hjá sér vissi það af framferði RÚV á markaðnum, enda er stefna BBC mjög skýr í þessum efnum eins og Magnús bendir á í grein sinni: \"BBC er ekk heimilt að selja auglýsingar eða kostanir á almenningsþjónustu. Þnnig er stofnunin sjálfstæð frá hagsmunum auglýsenda og tryggt að einungis er verið að sinna hagsmunum áhorfenda. EF BBC myndi selja aðgang að útsendingum, í heild eða að hluta, myndu hagsmunir auglýsenda stjórna bæði dagskrárgerð og dagskráruppstillingu. Einnig yrðu þá mun minni tekjur fyrir aðra ljósvakamiðla.\"
Magnús segir RÚV í svo harðri samkeppni við einkarekna fjölmiðla að stofnunin reyni markvisst að leggja stein í götu þeirra: \"Þegar einkareknu sjónvarpsstöðvarnar bjóða sitt vandaðasta dagskrárefni er algengara en ekki að RÚV sýni á sama tíma sitt besta efni sem er samkeppni en ekki þjónusta,\" skrifar Magnús og segir RÚV leggja sig í líma við að safna áhorfspunktum á kostnað einkamiðlanna.
Magnús segir þó dagskrárstefnuna ekkert á við auglýsingastefnuna hjá ríkisrekna fjölmiðlinum. Þar svífist stofnunin einskis og reglur sé oftlega þverbrotnar til að auka tekjur hennar: \"Vera Ríkisútvarpsins á samkeppnismarkaði er vissulega óheppileg en það eru vinnubrögð söludeildar sem gera ástandið illþolanlegt fyrir samkeppnisaðila. Nýlega fékk undirritaður tilboð um ókeypis birtingar í Vetrarolympíuleikum ef hann kæmi með nógu \"flott plan og upphæð inn í dagskrána\". Höfum í huga að hér er verið að semja við ríkisstofnun með yfirburðastöðu á samleppnismarkaði,\" skrifar Magnús í Fréttablaðinu í gær.