\"Rússar eru ekki að gera annað en að ná fiskverðinu niður. Það er engin önnur eðlileg skýring á innflutningsbanninu á íslenskum fiski til landsins,\" segir Vilhjálmur Bjarnason þingmaður Sjálfstæðisflokksins við Hringbraut.
Hann segir að fram hafi komið á fundi utanríkismálanefndar Alþingis í gær að þvingunaraðgerðir Evrópusambandsins og bandalagsþjóða þess þýði einvörðungu útflutningsbann á hervörum til Rússlands og þjónustu við hernumin svæði. Aðgerðirnar takmarki á engan hátt viðskipti með matvöru, drykkjarvöru eða heimilistæki svo dæmi sé tekið. Því megi Frakkar áfram flytja rauðvín til Rússlands og geri það enn. Því megi Svisslendingar flytja út ost til Rússlands og geri það enn. Og því megi Japanar, sem eru aðilar að aðgerðunum, flytja út raftæki til Rússlands og geri það enn. Og vel að merkja; Íslendingar megi ennþá flytja út lambakjöt til Rússlands.
Í þessu ljósi metur Vilhjálmur það svo að Rússar séu einvörðungu að reyna að ná niður fiskverði með þessum aðgerðum. Íslendingar þekki hvað gerist ef þorskblokkin falli í verði um 50%, en þá sé gengið fellt. Rússar glími nú við 50% fall á verði olíu - og hvað geri þeir; reyni með öllum ráðum að fá fiskinn við lægra verði inn í landið. Þeir viti hvar Íslendingar séu viðkvæmastir, viti hver sterkasti þrýstihópurinn sé á Íslandi - og sjálfum sýnist Vilhjálmi afkoman af útflutningi uppsjávarfisks til Rússlands og annarra landa hafa verið óeðlilega góða undanfarin misseri ef út í það sé farið.
Niðustaðan sé því einfaldlega þessi: Rússar þurfi að fá makríl og síld á lægra verði. Tímabundið innflutningsbann sé liður í þeirri aðgerð.